Goodbye Iceland!
1 mánuður og 10 dagar til stefnu. Eins og hvað ég hlakka svakalega til að stinga af, að þá er annars margt sem ég get átt eftir að sakna. Nr.1 er skamdegið og brjálaðir snjóstormar, ótrúlegt en satt. Svo á ég eftir að sakna mi carro lindo

Meira að segja svo mikið að ég hef íhugað að taka hann með mér, krúsa gegnum Evrópu, what good times… Enþað verður erfitt að fara að taka strætó og neðanjarðar lestir aftur eftir að hafa haft þessi þægindi í svo langan tíma. En hér með er hann settur á sölu, snökt!
Aðrir hlutir sem saknað verður: íbúðin (sem tók líka allan þennan tíma að fá), tilfinningin að eiga heimili, það er fátt leiðinlegra en að búa í ferðatöskum. Vildi að ég gæti sagt vinnan en það er ey svo. Fínasta vinna en ekki til að staldra við lengur en ég hef gert. Svo að sjálfsögðu þegar maður er búinn að vera í útlandinu einhvern tíma fer maður smá að sakna íslenskunar. En akkúrat núna not so much. Þannig að í rauninni eru það aðallega bíllinn og íbúðin sem ég mun sakna mest. Hlutir sem er hægt að öðlast hvar sem er í heiminum og hefur ekkert með Ísland að gera. Frábært!
Við Karen fórum í ferðalag um verslunarmanna helgina. Ætluðum að vera voða íslenskar og keyra útá land, kannski tjalda einhversstaðar, fara á hestbak og skoða þessa náttúru sem maður heyrir svo mikið um í útlöndum. Við enduðum með að fara niður í Tourist Info á Aðalstræti, því við höfðum ekki hugmynd hvað við áttum að skoða. En konan þar gaf okkur ýmis góð ráð og hugmyndaflugið var í hæsta þegar við brunuðum úr borginni í glampandi sólskininu. Keyrðum í gegnum Skorradalinn, sem var ansi langur malarvegur og þegar í Borgarnes var komið var sólin horfin og við uppgefnar. Við keyrðum svo langt sem til Eldborgar og tjölduðum, en það er saga útaf fyrir sig. Keyrðum svo daginn eftir út á Snæfellsnes (heitir það það ekki?) og brunuðum uppá jökulinn brum,brum.. en það var alveg klikkað veður þarna uppi og næstum ekkert útsýni svo við þurftum að snúa við…having seen nothing. Tókum puttaling uppí, 2 meira að segja. Semsagt klikkað veður fyrir vestan og við bara drifum okkur þaðan í burt og keyrðum norður á leið. Bla, bla, var ekki alveg að gera mér grein fyrir að ég ætlaði að segja alla sólarsöguna. Læt bara nokkrar myndir tala sínu.

Skipt um þurrkur in Akranes
Fórum aldrei á hestbak

Vinnukonan ofgerði sig og þurfti að binda hana fasta (þræll!)

Nenntum ekki að ganga að Klukkufossi en heimsóttum álfana

Þurftum aðeins að ganga 5 skref frá bílnum til að sjá Goðafoss

Mývó

Dimmuborgir

Ekki bara lón í Grindavík
August 22, 2006