Vonbrigði með hálfbræddum osti og sveppakurli…

Posted On October 27, 2006

Filed under Uncategorized

Comments Dropped leave a response

Jamm! Ekki svo glatt að gerast flakkari þessa dagana. Hef þó lært að þekkja ferðafélaga mína og svo auðvitað sjálfa mig í svona aðstöðum. Veit enginn hvað um ræðir?? Það er í góðu lagi, það les þetta enginn nema ég, ég sem hef tekið ákvörðun um ferðalagið mitt. Já, það dó næstum því með slæmu vali á ferðafélaga, en endurlífgaðist svo skyndilega með góðum skammt af mínum óþreytta viljastyrk. Svoleiðis að það er farið að blása í seglin á ný…halelúja! Að vera solostepper í útlöndum er bara ein önnur ögrunin, fær maður nóg af þeim í þessu dull klakaskrípos lífi?

 En… ekki gátum við hunsað flugmiðana sem keyptir voru þegar spennan var í hæsta og framtíðin algerlega óvitað mál. Nehei! Við tókum okkur 2 vikna frí og fórum til Danmerkur fyrri vikuna, og Barcelona þá seinni. Hefði alveg viljað vera eftir í Barcelona og halda draumnum áfram, en veistu, það er alltof margt eftir til að byrja að iðrast..ekki satt?? En semsagt ætla ég að gefa sjálfri mér þessa stóru afmælis/útskriftargjöf í vor, hætta öllu pexi og tuði og bara baða í ánægjunni af þeim forréttindum sem ég hef að GETA gert allt þetta sem ég vil og ætla. Mörgum er bannað að ferðast frá heimalandi sínu, er það einhvað annað en fangelsi?

Saa ka’ du lær’ det!!

Respond now.