Nóvember löngu farinn

Posted On December 19, 2006

Filed under Uncategorized

Comments Dropped leave a response

Það eru til þessir dagar sem maður bíður með óþreygju eftir, spyrnir í og valhoppar í von um svif eða útsýnisflug. Svo eru það hinir dagarnir sem segja manni bara hreinlega að klappa í! Er að upplifa svoleiðis mánuð núna, voða gaman. Kompás menn vildu ólmir boða mig á fund síðdegis. Hinar gjörvöllu spurningar um hvernig það nú er að vera fastagestur götunnar…Ég var að spá í að mæta og segja að það væri frekar fúlt. En svo snerist mér hugur og ég uppgvötaði mér til mikillar ánægju að ég mun seint verða fórnarlamb sjálfsvorkunnar. Svo ég dreif mig í sund og hér er ég spikfeit og alsæl. Slurp! og Yumm!

Respond now.